Sep 27, 2008
www.huld.blog.is

 
Hef flutt mig um set.

Kannski verð ég duglegri á nýjum slóðum. Kannski ekki.

www.huld.blog.is

Sjáumst - heyrumst!

Posted at 02:08 pm by eyrunh
Make a comment  




Sep 22, 2008
Einu árinu eldri

Ég á svo stóran og duglegan strák. Hann varð þriggja ára á föstudaginn, litla gullið. Hver dagur með honum er ævintýri.

Stolt móðir og ánægð.

Posted at 02:27 am by eyrunh
Make a comment  




Aug 22, 2008
Ísland...

...er stórasta land í heimi!

Dorrit hafði rétt fyrir sér...við erum best í heimi. Úfff...svakalegur leikur. Áfram við!

Posted at 07:07 am by eyrunh
Make a comment  




Aug 8, 2008
08 08 08

Það minnsta sem ég get gert er að skrifa þessar línur á þessum flotta degi.

Ekki eignaðist ég barn, og ég rauk alls ekki til, eins og svo margir, og gifti mig...

Njótiði dagsins - það er enn von 09 09 09, 10 10 10, 11 11 11 og 12 12 12... Þessir dagar verða án efa annasamir hjá prestum landsins, já og guði.


Posted at 05:01 pm by eyrunh
Make a comment  




Jul 12, 2008
Sumarið

...flýgur áfram...

Noregsferð lokið  - notalegt og gaman að hitta góða ættingja eftir langan tíma.
Vika í höfuðborginni - gerir manni gott einstaka sinnum - vinir heimsóttir, og búðir!
Vika á Flúðum í sumarbústað KÍ - æðislegur tími í faðmi fjölskyldu og vina, sól og sumar!

Á næstu grösum: skírn hjá Lillu Birnu og Almars, Austurferð: Egilsstaðir og auðvitað Bræðslan, Borgarfirði eystri.
Sumar og enn meiri sól, sumarfrí, já takk! Big Smile


Currently watching:
Dora The Explorer - Puppy Power!
Staring Muhammed Cunningham



Posted at 12:14 pm by eyrunh
Make a comment  




Jun 19, 2008
Konur!

Til hamingju með daginn.

Það var á kvenréttindadaginn fyrir fjórum árum sem fimm stoltar, bleikklæddar yngismeyjar útskrifuðust með BA próf í íslensku...eins og það hafi gerst í gær.

Ég klæddist bleiku í dag - knús á ykkur stelpur.

Posted at 11:04 am by eyrunh
Comments (2)  




Jun 4, 2008
Bræðslan 2008

Braedslan-logo-skissa01

Þá er loksins komið að þessu!

Miðasalan hefst 10:00 í fyrramálið - http://midi.is/tonleikar/1/5220/

 

Bræðslan 2008

Damien Rice, Eivör Pálsdóttir og Magni.

 

Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði Eystri verður haldin laugardaginn 26. júlí í sumar.

Þetta verður í fjórða sinn sem hátíðin verður haldin en undanfarin ár hafa komið þar

fram Emilíana Torrini, Belle & Sebastian, Magni, Megas og Senuþjófarnir, Lay Low,

Aldís og Jónas Sigurðsson.  Bræðslan hefur vakið mikla lukku þau 3 ár sem hún

hefur verið haldin og hafa um 1.000 manns sótt hana að jafnaði.

Íbúafjöldi Borgarfjarðar Eystri telur um 140 manns og því hefur verið

um töluverða margföldun að ræða þessa helgi í þorpinu.

Tónlistarhátíðin Bræðslan dregur nafn sitt af samnefndum síldarskúr

þarsem tónleikar hátíðarinnar fara fram í ansi skemmtilegri umgjörð.  Það eru engar smá

kanónur sem taka átt í Bræðslunni í ár þeas Írska söngvaskáldið Damien Rice, færeyska nátturbarnið

Eivör Pálsdóttir og heimalingurinn og rokkstjarnan Magni Ásgeirsson.

 

http://www.borgarfjordureystri.is/

http://www.damienrice.com/

http://www.eivor.com

http://www.myspace.com/magnirocks

 p.s. já Emilíönu var skipt út fyrir Eivöru Páls..kemur alls ekki að sök! :)


Posted at 10:20 am by eyrunh
Comment (1)  




May 29, 2008
Merkilegur dagur í dag

...og jörðin fagnaði með mér með því að stíga trylltan dans. Ég biðst velvirðingar á því. En öllu máli skiptir að enginn slasaðist alvarlega.

Þessi dagur verður í minnum hafður og skráður í sögubækurnar. Ég á afmæli og Suðurlandsskjálftinn reið yfir - vona að þetta hafi verið hann.

Posted at 04:17 pm by eyrunh
Comment (1)  




Apr 28, 2008
Bræðslan 2008


Damien Rice, Emilíana Torrini og Magni í Bræðslunni í sumar
 
Tónlistarhátíðin Bræðslan verður haldin á Borgarfirði helgina 25. - 27. júlí í sumar.  Þetta verður í fjórða sinn sem hátíðin er haldin en undanfarin ár hafa komið þar fram Emilíana Torrini, Belle & Sebastian, Magni, Megas og Senuþjófarnir, Lay Low, Aldís og Jónas Sigurðsson.  Bræðslan hefur vakið mikla lukku þau 3 ár sem hún hefur verið haldin og hafa um 1.000 manns sótt hana að jafnaði.  Íbúafjöldi Borgarfjarðar Eystri telur um 150 manns og því hefur verið um töluverða margföldun að ræða þessa helgi í þorpinu.  Tónlistarhátíðin Bræðslan dregur nafn sitt af gamalli síldarbræðslu Borgfirðinga þar sem tónleikar hátíðarinnar fara fram í ansi skemmtilegri umgjörð.

Það er Bræðslunni mikill heiður að uppljóstra um dagskrána í sumar því hún er ekki af verri endanum.
 

Írska söngvaskáldið Damien Rice hefur boðað komu sína en Damien ætti að vera allnokkrum Íslendingum að góðu kunnur enda komið hingað þrisvar til tónleikahalds.  Tvisvar hefur Damien spilað fyrir troðfullu húsi á NASA og svo tók hann þátt í náttúrutónleikunum í Laugardalshöll á sínum tíma.  Damien hefur gefið út tvær plötur á ferlinum sem selst hafa í miljónum eintaka og því um mikinn hvalreka að ræða fyrir Bræðsluna.
 

Emilíana Torrini ætlar að koma fram á Bræðslunni í sumar.  Emilíana er að hluta til ábyrg fyrir því að Bræðslan fór af stað á sínum tíma því hún kom fram fyrsta árið sem hún var haldin og svo einnig árið eftir og þá dró hún Belle & Sebastian með sér.  Emilíana tók sér frí í fyrra en mætir nú aftur í Bræðsluna galvösk.  Emilíana er búin að helga tíma sinn undanfarið við upptökur á nýrri plötu sem væntanleg er á þessu ári.

 

Sjáumst í BræðslunnI!


Posted at 11:09 am by eyrunh
Comments (4)  




Apr 12, 2008
Stelpugreyið...

Við sonur minn skellihlógum saman áðan, fengum vægast sagt hláturskast!

Sena kvöldsins: Við horfum á söngkeppni framhaldsskólanna.

Mamman: Eigum við að sjá hvort þessir krakkar geta sungið fallega?
Sonurinn: Já... (lagðist á öxlina á mér og við horfum saman.)
Mamman: Æ, hún á nú í einhverjum vandræðum með þetta greyið stelpan.
Sonurinn: (missir áhugann og fer að leika sér)

10 mínútur líða. Mamman horfir á keppnina. Sonurinn leikur sér en snýr sér svo að móður sinni og segir: Mamma, greyið þessi stelpa líka, greyið hún.

Mamman var alveg sammála drengnum og við hlógum okkur máttlaus, því hann er jú svo klár og auðvitað með vel virkt tóneyra...

Posted at 04:06 pm by eyrunh
Comment (1)  




Next Page

Eyja peyja Skerjafjarðarmeyja



,,Ég vissi ekki að allir þessir dagar sem liðu hjá væru lífið..."