Við sonur minn skellihlógum saman áðan, fengum vægast sagt hláturskast!
Sena kvöldsins: Við horfum á söngkeppni framhaldsskólanna.
Mamman: Eigum við að sjá hvort þessir krakkar geta sungið fallega?
Sonurinn: Já... (lagðist á öxlina á mér og við horfum saman.)
Mamman: Æ, hún á nú í einhverjum vandræðum með þetta greyið stelpan.
Sonurinn: (missir áhugann og fer að leika sér)
10 mínútur líða. Mamman horfir á keppnina. Sonurinn leikur sér en snýr sér svo að móður sinni og segir: Mamma, greyið þessi stelpa líka, greyið hún.
Mamman var alveg sammála drengnum og við hlógum okkur máttlaus, því hann er jú svo klár og auðvitað með vel virkt tóneyra...
Posted at 04:06 pm by eyrunh