Apr 28, 2008
Bræðslan 2008


Damien Rice, Emilíana Torrini og Magni í Bræðslunni í sumar
 
Tónlistarhátíðin Bræðslan verður haldin á Borgarfirði helgina 25. - 27. júlí í sumar.  Þetta verður í fjórða sinn sem hátíðin er haldin en undanfarin ár hafa komið þar fram Emilíana Torrini, Belle & Sebastian, Magni, Megas og Senuþjófarnir, Lay Low, Aldís og Jónas Sigurðsson.  Bræðslan hefur vakið mikla lukku þau 3 ár sem hún hefur verið haldin og hafa um 1.000 manns sótt hana að jafnaði.  Íbúafjöldi Borgarfjarðar Eystri telur um 150 manns og því hefur verið um töluverða margföldun að ræða þessa helgi í þorpinu.  Tónlistarhátíðin Bræðslan dregur nafn sitt af gamalli síldarbræðslu Borgfirðinga þar sem tónleikar hátíðarinnar fara fram í ansi skemmtilegri umgjörð.

Það er Bræðslunni mikill heiður að uppljóstra um dagskrána í sumar því hún er ekki af verri endanum.
 

Írska söngvaskáldið Damien Rice hefur boðað komu sína en Damien ætti að vera allnokkrum Íslendingum að góðu kunnur enda komið hingað þrisvar til tónleikahalds.  Tvisvar hefur Damien spilað fyrir troðfullu húsi á NASA og svo tók hann þátt í náttúrutónleikunum í Laugardalshöll á sínum tíma.  Damien hefur gefið út tvær plötur á ferlinum sem selst hafa í miljónum eintaka og því um mikinn hvalreka að ræða fyrir Bræðsluna.
 

Emilíana Torrini ætlar að koma fram á Bræðslunni í sumar.  Emilíana er að hluta til ábyrg fyrir því að Bræðslan fór af stað á sínum tíma því hún kom fram fyrsta árið sem hún var haldin og svo einnig árið eftir og þá dró hún Belle & Sebastian með sér.  Emilíana tók sér frí í fyrra en mætir nú aftur í Bræðsluna galvösk.  Emilíana er búin að helga tíma sinn undanfarið við upptökur á nýrri plötu sem væntanleg er á þessu ári.

 

Sjáumst í BræðslunnI!


Posted at 11:09 am by eyrunh

Eyrún
May 13, 2008   04:41 AM PDT
 
Hommabrúðkaup! Má ég koma með???
Jódís
May 8, 2008   04:20 PM PDT
 
Fjandakornið... Þegar endanlega var ákveðið að ekkert gæti komið í veg fyrir að við mættum í bræðsluna laumaðist boðskort í hommabrúðkaup inn um lúguna... Verð nú að mæta í það held ég:)
ester
April 30, 2008   09:13 AM PDT
 
mmm, hljómar vel :)
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments







Previous Entry Home Next Entry

Eyja peyja Skerjafjarðarmeyja



,,Ég vissi ekki að allir þessir dagar sem liðu hjá væru lífið..."