Apr 3, 2008
,,Landsbyggðarpakkið"

Þetta er ekki eðlilegt. Eða hvað finnst ykkur? Við landsbyggðarfólkið orðin eins og þurfandi börn í Afríku. Höfuðborgarbúar! Sendið allt notað dót til okkar...

mynd

Orkuveita Reykjavíkur er að selja notuð líkamsræktartæki. MYND/GVA

Orkuveita Reykjavíkur auglýsir til sölu í Morgunblaðinu í dag fjöldann allan af líkamsræktartækjum. Um er að ræða gömul tæki sem fyritækið keypti notuð þegar nýja húsið var tekið í notkun. Tilvalið fyrir fólk á landsbyggðinni segir Sigrún A. Ámundadóttir hjá Orkuveitunni.

Sigrún segir að tækin séu mörg hver komin til ára sinna og séu ekki boðleg líkamsræktarstöðvum í Reykjavík. „Þetta eru engu að síður tæki sem stöðvar úti á landi geta boðið sýnum viðskiptavinum, við gerum nefnilega minni kröfur úti á landi," segir Sigrún en öll tækin verða seld í einu lagi.

Því geta einstaklingar ekki nælt sér í einstök tæki en listinn er nokkuð langur. Þar má sjá kálfavél, fótakreppur, kviðvélar og tvo ljósabekki.
„Nei einstaklingar geta ekki nælt sér í ljósabekk hjá okkur. Það er bara annaðhvort allt eða ekkert."

Sigrún segist vonast til þess að aðilar úti á landi geti nælt sér í tækin og byrjað að æfa sem fyrst. „Það er það sem skiptir máli."


Posted at 06:53 am by eyrunh
Comments (4)  




Mar 31, 2008
Dubbeldusch

Frábært sýning hjá Leikfélagi Akureyrar! Mæli með henni. Fjórar stjörnur:

Stjarna
Stjarna
Stjarna
Stjarna






Posted at 02:29 pm by eyrunh
Make a comment  




Mar 27, 2008
Ora í dós...

...hvar eru fiskibollurnar mínar frá Ora sem áður fundust í dós löðrandi í tómatsósu innan um vel soðnar kartöflur?

Ummm ég fæ vatn í munninn við tilhugsunina eina.

Ohhhh ég fæ tár í augun við tilhugsunina eina, þær eru horfnar úr hillunum...


Currently listening to:
The Best Of
By The Cardigans


Currently reading:
Q & A: A Novel
By Vikas Swarup



Posted at 08:54 am by eyrunh
Comments (3)  




Mar 7, 2008
Vei, vei, vei

Ein vika í páskafrí!

Vei, ég kem suður.

Vei, vei, vei...ég þarf að lesa 7 skáldsögur!...vei!

Vei!

Posted at 03:53 am by eyrunh
Comments (3)  




Feb 23, 2008
Ho ho ho, hey, hey, hey

Ekki sterkur leikur að reka bakraddirnar Barði...ó nei.

...þarf maður ekki að geta sungið til að taka þátt í Eurovision?

Flott lag...en ég hefði valið góða söngkonu...og hvar er hey heyið sem var í upphafi?

Stórt er spurt...

Posted at 12:59 pm by eyrunh
Make a comment  




Feb 21, 2008
Flott lógó?

Spurning um að reka markaðsstjórann sinn? ...eða ekki.





Posted at 01:50 pm by eyrunh
Comment (1)  




Feb 12, 2008
Takk S&h

Það er svo þægilegt að þurfa ekki að ákveða sjálf hverjum ég er ástfangin af. Séð og heyrt gerir það bara fyrir mig...og gerir lífið auðveldara fyrir vikið. Ég veit ekki hvernig ég get þakkað þeim, fyrir að spara mér ómælda þankahríð og vangaveltur.

Posted at 07:12 am by eyrunh
Comments (2)  




Jan 22, 2008
Bjargið borginni...!


Posted at 05:10 am by eyrunh
Make a comment  




Dec 31, 2007
Gleðilegt árið

Kæru vinir nær og fjær...

Megi nýja árið verða ykkur heillaríkt, færa ykkur gæfu og gleði, megi allar heilladísir og lukkutröll vaka yfir ykkur og draumar ykkar rætast!


Big SmileWinkBig SmileTongueWinkBig SmileTongueWinkBig SmileTongueWinkBig SmileTongueWinkBig SmileTongueWinkBig SmileTongueWink

Smá skilaboð og auglýsingar að lokum:

p.s. verslið flugeldana hjá björgunarsveitum...

p.p.s. þakka Iceland Express fyrir þá ,,prýðisþjónustu" að koma litla bróður mínum ekki heim frá Köben fyrir áramót...arrrggg...cry  Ég er því bróðurlaus þessi áramótin. Icelandair stóðu hins vegar við sitt og meira til...note to self: panta með Flugleiðum, panta með Flugleiðum...



Posted at 06:22 am by eyrunh
Make a comment  




Nov 19, 2007
Skerjaverið mitt

Litla búðin okkar með stóra hjartað er að loka...

Þegar ég heyrði þessar fréttir varð ég mjög sorgmædd, hvar annars staðar á ég að fá þrjár nýjar dvd-myndir leigðar á 500 krónur?

Það voru forréttindi að hafa þessa litlu fjölskyldubúð á horninu. Ég hugsa að ég hafi nýtt mér verslunina annan hvern dag að meðaltali...í sjö ár. En það er ekki nóg, nú beita Hjördís og Stefán sér að fullu í kryddgerðinni...mæli með Best á lambið, kjúklinginn, fiskinn o.s.frv. kryddunum...þau eru frábær.

Takk fyrir mig í gegnum tíðina Skerjó...þín verður sárt saknað...Skerjafjörður verður ekki samur án þín...snökt snökt.



Posted at 08:57 am by eyrunh
Comments (2)  




Previous Page Next Page

Eyja peyja Skerjafjarðarmeyja



,,Ég vissi ekki að allir þessir dagar sem liðu hjá væru lífið..."