Orkuveita Reykjavíkur auglýsir til sölu í Morgunblaðinu í dag
fjöldann allan af líkamsræktartækjum. Um er að ræða gömul tæki sem
fyritækið keypti notuð þegar nýja húsið var tekið í notkun. Tilvalið
fyrir fólk á landsbyggðinni segir Sigrún A. Ámundadóttir hjá
Orkuveitunni.
Sigrún segir að tækin séu mörg hver komin til ára sinna og séu ekki
boðleg líkamsræktarstöðvum í Reykjavík. „Þetta eru engu að síður tæki
sem stöðvar úti á landi geta boðið sýnum viðskiptavinum, við gerum
nefnilega minni kröfur úti á landi," segir Sigrún en öll tækin verða
seld í einu lagi.
Því geta einstaklingar ekki nælt sér í einstök
tæki en listinn er nokkuð langur. Þar má sjá kálfavél, fótakreppur,
kviðvélar og tvo ljósabekki.
„Nei einstaklingar geta ekki nælt sér í ljósabekk hjá okkur. Það er bara annaðhvort allt eða ekkert."
Sigrún
segist vonast til þess að aðilar úti á landi geti nælt sér í tækin og
byrjað að æfa sem fyrst. „Það er það sem skiptir máli."
Posted at 06:53 am by eyrunh
Permalink
Frábært sýning hjá Leikfélagi Akureyrar! Mæli með henni. Fjórar stjörnur:
Stjarna
Stjarna
Stjarna
Stjarna
Posted at 02:29 pm by eyrunh
Permalink
...hvar eru fiskibollurnar mínar frá Ora sem áður fundust í dós löðrandi í tómatsósu innan um vel soðnar kartöflur?
Ummm ég fæ vatn í munninn við tilhugsunina eina.
Ohhhh ég fæ tár í augun við tilhugsunina eina, þær eru horfnar úr hillunum...
Posted at 08:54 am by eyrunh
Permalink
Ein vika í páskafrí!
Vei, ég kem suður.
Vei, vei, vei...ég þarf að lesa 7 skáldsögur!...vei!
Vei!
Posted at 03:53 am by eyrunh
Permalink
Ekki sterkur leikur að reka bakraddirnar Barði...ó nei.
...þarf maður ekki að geta sungið til að taka þátt í Eurovision?
Flott lag...en ég hefði valið góða söngkonu...og hvar er hey heyið sem var í upphafi?
Stórt er spurt...
Posted at 12:59 pm by eyrunh
Permalink
Spurning um að reka markaðsstjórann sinn? ...eða ekki.

Posted at 01:50 pm by eyrunh
Permalink
Það er svo þægilegt að þurfa ekki að ákveða sjálf hverjum ég er ástfangin af. Séð og heyrt gerir það bara fyrir mig...og gerir lífið auðveldara fyrir vikið. Ég veit ekki hvernig ég get þakkað þeim, fyrir að spara mér ómælda þankahríð og vangaveltur.
Posted at 07:12 am by eyrunh
Permalink
Posted at 05:10 am by eyrunh
Permalink
Kæru vinir nær og fjær...
Megi nýja árið verða ykkur heillaríkt, færa ykkur gæfu og gleði, megi allar heilladísir og lukkutröll vaka yfir ykkur og draumar ykkar rætast!


Smá skilaboð og auglýsingar að lokum:
p.s. verslið flugeldana hjá björgunarsveitum...
p.p.s. þakka Iceland Express fyrir þá ,,prýðisþjónustu" að koma litla bróður mínum
ekki heim frá Köben fyrir áramót...arrrggg...

Ég er því bróðurlaus þessi áramótin. Icelandair stóðu hins vegar við sitt og meira til...note to self: panta með Flugleiðum, panta með Flugleiðum...
Posted at 06:22 am by eyrunh
Permalink
Litla búðin okkar með stóra hjartað er að loka...
Þegar ég heyrði þessar fréttir varð ég mjög sorgmædd, hvar annars staðar á ég að fá þrjár nýjar dvd-myndir leigðar á 500 krónur?
Það voru forréttindi að hafa þessa litlu fjölskyldubúð á horninu. Ég hugsa að ég hafi nýtt mér verslunina annan hvern dag að meðaltali...í sjö ár. En það er ekki nóg, nú beita Hjördís og Stefán sér að fullu í kryddgerðinni...mæli með Best á lambið, kjúklinginn, fiskinn o.s.frv. kryddunum...þau eru frábær.
Takk fyrir mig í gegnum tíðina Skerjó...þín verður sárt saknað...Skerjafjörður verður ekki samur án þín...snökt snökt.
Posted at 08:57 am by eyrunh
Permalink