|
Sena kvöldsins: Við horfum á söngkeppni framhaldsskólanna. Mamman: Eigum við að sjá hvort þessir krakkar geta sungið fallega? Sonurinn: Já... (lagðist á öxlina á mér og við horfum saman.) Mamman: Æ, hún á nú í einhverjum vandræðum með þetta greyið stelpan. Sonurinn: (missir áhugann og fer að leika sér) 10 mínútur líða. Mamman horfir á keppnina. Sonurinn leikur sér en snýr sér svo að móður sinni og segir: Mamma, greyið þessi stelpa líka, greyið hún. Mamman var alveg sammála drengnum og við hlógum okkur máttlaus, því hann er jú svo klár og auðvitað með vel virkt tóneyra... |
| Leave a Comment: |